NEYÐARÞJÓNUSTA

Þjónustuver og neyðarþjónusta Króks.

Sími þjónustuvers: 525 8000.

Þjónustuverið er opið alla virka daga frá kl. 08:00–17:00


Neyðarþjónusta utan opnunartíma

Utan opnunartíma þjónustuversins er hægt að hafa samband við bakvakt neyðarþjónustu Króks í síma 525 6500, ef um neyðartilvik er að ræða. Vinsamlegast athugið að þar sem um neyðarþjónustu er að ræða er ekki alltaf hægt að tryggja tafarlausa viðgerð. Þegar haft er samband við neyðarþjónustuna er farið yfir bilunina símleiðis, umfang hennar metið og leitast við að finna bestu mögulegu lausnina.


Verð og skilmálar neyðarþjónustu

Þjónusta utan hefðbundins opnunartíma getur verið háð útkallsgjaldi og öðrum kostnaði samkvæmt gildandi verðskrá Króks.


Vegaaðstoð fylgir Land Rover bifreiðum án endurgjalds fyrstu þrjú árin, samkvæmt gildandi skilmálum vegaaðstoðar framleiðanda. Athugið að þótt Land Rover bifreiðum fylgi fimm ára ábyrgð gildir gjaldfrjáls vegaaðstoð aðeins fyrstu þrjú árin. Ef bilun reynist umfangsmikil eða ekki er hægt að ljúka viðgerð kann að vera hægt að útvega bílaleigubíl á hagstæðum kjörum. Eigendur bifreiða sem falla undir þriggja ára vegaaðstoð geta átt rétt á bílaleigubíl án leigugjalds, samkvæmt gildandi skilmálum.

Kílómetragjald er þó ávallt á kostnað eiganda.